settings icon
share icon
Spurning

Hvað merkir það að vera endurfædd kristin manneskja?

Svar


Hvað merkir það að vera endurfædd kristin manneskja? Sígildur kafli í Biblíunni sem svarar þeirri spurningu er Jóhannes 3:1-21. Drottinn Jesús Kristur er að tala við Nikódemus, áhrifamikinn farísea og ráðherra meðal Gyðinga. Nikódemus hafði komið til Jesú á næturþeli. Nikódemus var með spurningar sem hann vildi bera upp við Jesúm.

Meðal þess sem Jesús sagði við Nikódemus var þetta: „Sannlega, sannlega segir ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.” Nikódemus segir við hann: „Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?” Jesús svaraði: Sannlega, sannlega segir ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda. Það sem af holdinu fæðist er hold, en það sem af andanum fæðist er andi. Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju… (Jóhannes 3:3-7).

Orðið „endurfæddur” merkir bókstaflega „fæddur að ofan”. Nikódemus hafði brýna þörf. Hann þurfti að breyta hjarta sínu – undirgangast andlega umsköpun. Ný fæðing, það að endurfæðst, er verk Guðs og miðlar eilífu lífi til þess einstaklings sem trúir á Guð (Seinna Kórinsubréf 5:17; Títusarbréf 3:5; Fyrra Pétursbréf 1:3; Fyrsta Jóhannesarbréf 2:29; 3:9; 4:7; 5: 1-4, 18). Jóhannes 1:12-13 gefur til kynna, að „endurfæddur” beri líka með sér hugmyndina um að „verða Guðs börn” með því að treysta nafni Jesú Krists.

Sú rökræna spurning hlýtur að vakna: „Hvers vegna þarf manneskja að endurfæðast?” Í bréfi sínu til Efesusmanna (2:1) segir Páll postuli: „Þér voruð eitt sinn dauðir vegna afbrota yðar og synda.” Og Rómverjum skrifaði postulinn í bréfinu til þeirra (3:23): „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.” Þannig þarf manneskja að endurfæðast til að fá syndir sínar fyrirgefnar og vera í sambandi við Guð.

Hvernig getur það orðið? Í Efessusbréfinu 2:8-9 segir: „Því af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf. Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því.” Þegar manneskja hefur verið „frelsuð” hefur hún fæðst að nýju, verið andlega endurnýjuð, og er nú Guðs barn í krafti endurfæðingarinnar. Að treysta Jesú Kristi, sem greiddi syndagjaldið þegar hann dó á krossinum, felur í sér að „endurfæðast” andlega. „Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá, nýtt er orðið til…” (Seinna Kórintubréf 5:17).

Ef þú hefur aldrei treyst Drottni Jesú Kristi sem frelsara þínum, viltu þá velta fyrir þér áminningu Heilags anda þegar Hann tala til hjarta þíns? Þú þarft að endurfæðast. Viltu biðjast iðrunarbænar og verða ný sköpun í Kristi á þessum degi? „En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans. Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir.¨

Ef þú vilt taka við Jesú Kristi sem frelsara þínum og fæðast á ný, þá er hér einföld bæn. Mundu að það mun ekki frelsa þig að fara með þessa bæ eða neina aðra. Það er aðeins með því að treysta Kristi sem þú getur frelsast undan syndinni. Þessi bæn er einfaldlega ein leið til að tjá Guði trú þína á Hann og þakka Honum fyrir að sjá fyrir hjálpræði þínu. „Guð, ég veit að ég hef syndgað gegn Þér og verðskulda refsingu. En Jesús Kristur tók á sig refsinguna sem ég verðskuldaði, svo mér yrði fyrirgefið fyrir trúna á Hann. Ég sný baki við syndum mínum og treysti á Þig til hjálpræðis. Þakka þá undursamlega náð þína og fyrigefningu – gjöf eilífs lífs. Amen.”

Hefurðu valið Krist eftir lestur þennan? Sé svo, þá vinsamlega ýttu á hnappinn hér að neðan „Ég hef tekið við Kristi í dag“

English



Til baka á heimasíðuna á íslensku

Hvað merkir það að vera endurfædd kristin manneskja?
Facebook icon Twitter icon Pinterest icon Email icon
© Copyright Got Questions Ministries